157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:10]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Ég heyri að hann tekur undir þær vangaveltur að hér sé verið að drepa málum á dreif vegna ýmissa vandamála, bæði innan ríkisstjórnarinnar sjálfrar, samstarfsins þar, og vegna þessara gríðarstóru mála sem ætti að leggja áherslu á innan lands.

Í seinna andsvari langar mig að fá viðbrögð þingmannsins við því sem ég kom aðeins inn á fyrr í dag í störfum þingsins. Nú eru einungis átta vikur í sveitarstjórnarkosningar og það hefur verið hefð fyrir því að þingið hafi reynt að haga málum og umræðunni á þann veg að sveitarstjórnarmálin og málefni íbúa sem kjörnir fulltrúar eru að fjalla um í samfélaginu og íbúar og fyrirtæki í nærsamfélögunum — að gefa sveitarstjórnarstiginu dálítið næði til að einbeita sér að þeim málum. Þingmenn fara meira að segja í frí frá hefðbundnum þingstörfum í tvær vikur. Hvað finnst hv. þingmanni um það að nú sé í raun verið að kljúfa þjóðina í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og láta alla samfélagsumræðu snúast um ESB, algjörlega í trássi við það sem hefð er fyrir hér hjá okkur? Ég kallaði nú hér í dag að mér finnst þetta vera mikil vanvirðing við sveitarstjórnarstigið. Hér eru þessi tvö stjórnsýslustig og sveitarstjórnarstigið er bara gríðarlega mikilvægt stjórnsýslustig. Það eru kosningar eftir átta vikur og út um allt land eru íbúar og kjörnir fulltrúar sem vilja ræða sín málefni í nærsamfélaginu og aðstæður á hverjum stað. En þá gengur forsætisráðherra á bak (Forseti hringir.) þeirra orða að við eigum ekki að kljúfa þjóðina, sem sannarlega er verið að gera núna örstuttu fyrir kosningar.