157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:14]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni kærlega fyrir sína ræðu og innlegg inn í þessa umræðu. Það voru nokkrir punktar í ræðu hv. þingmanns sem mig langaði að bregðast við en ég þjáist af smá gullfiskaminni í dag þannig að ég man bara einn þeirra. Það var þetta varðandi valmöguleikana í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem koma fram í þingsályktunartillögunni og áhyggjur hv. þingmanns af því að ef það kemur já upp úr kössunum þá verði keyrt af stað í aðildarviðræður en ef það kemur nei þá verði það ekkert endilega virt heldur reynt að fara inn í Evrópusambandið eftir einhverjum öðrum leiðum. Ég tel að þarna sé verið að gera úlfalda úr mýflugu — eða ekki einu sinni gera úlfalda úr mýflugu heldur búa til einhverja mýflugu sem er ekki þarna og síðan að gera úlfalda úr henni.

Ég segi fyrir mitt leyti að ef það kemur nei út úr þessari þjóðaratkvæðagreiðslu mun ég virða það. Ég held að flestir af mínum kollegum, alla vega í Viðreisn og í stjórnarmeirihlutanum, hafi sagt eitthvað á þá leið líka. Ef það kemur nei upp úr kössunum og ég verð einhvern tímann seinna á þessu kjörtímabili að beita mér fyrir öðrum leiðum inn í Evrópusambandið þá hvet ég hv. þingmann til að taka klippuna hérna og nota hana gegn mér.

Ég væri til í að spyrja hv. þingmann: Ef það kemur aftur á móti já, hvernig sér hv. þingmaður og þingflokkur Miðflokksins fyrir sér að þau muni beita sér? Myndu þau virða þá niðurstöðu eða beita sér fyrir því að aðildarviðræðum yrði hætt?