þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans svar við mínu andsvari. Ég vona að ég hafi skilið hv. þingmann rétt; ef það kemur já upp úr þjóðaratkvæðagreiðslunni mun alla vega hv. þingmaður og mögulega þingflokkur Miðflokksins ekki beita sér fyrir því hér á vettvangi þingsins að aðildarviðræðum yrði hætt, þvert á vilja kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslunni, heldur að þau muni þá taka þátt í því með okkur í stjórnarmeirihlutanum á vettvangi Alþingis að beita sér fyrir því að íslenskum hagsmunum sé haldið á lofti í aðildarviðræðum og við löndum sem bestum mögulegum samningi eða göngum frá borðinu ef okkur líst ekki á í hvað stefnir. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni að upplýsingar eigi að liggja fyrir þannig að kjósendur geti tekið upplýsta ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Varðandi svarmöguleikana þá er ég einfaldlega ekki sammála hv. þingmanni að það sé einhvers konar vanvirðing við kjósendur að stilla þessu upp með þeim hætti eins og hér er gert. Ég væri til í að heyra frá hv. þingmanni hvernig hann myndi orða spurninguna og svarmöguleikana ef hann fengi að ráða því sjálfur.