þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessar spurningar. Ég hef augljóslega misskilið fyrri spurninguna af því að nú hegg ég eftir að hv. þingmaður talar um að beita sér ekki gegn aðild eftir að þjóðaratkvæðagreiðsla hafi farið fram. (IngÞ: Já, það er það sem ég spurði um. )Já, ég hins vegar skildi spurninguna þannig í fyrri umferð minni að við myndum beita okkur gegn því að það færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla. (IngÞ: Nei, eftir. )Þess vegna sagði ég að við myndum beita okkur fyrir því að allar upplýsingar skiluðu sér í hús, ef maður getur orðað það sem svo. Ég get hins vegar í raun og veru notað sama svarið aftur, hv. þingmaður, því að fari það svo að niðurstaðan verði að þetta ferli fari af stað þá munum við enn þá frekar þurfa að beita okkur fyrir því að afla upplýsinga og koma þeim einhvern veginn inn í þjóðfélagsumræðuna vegna þess að þá gerist dálítið sem margsinnis hefur verið ítrekað hér í þessum sal, og virðist einhvern veginn ekki síast inn alveg sama hvað við nefnum það oft, dropinn virðist bara ekki hola steininn hér, að um leið og það ferli fer af stað þá hefst aðlögun. Það er hreinlega skrifað inn í aðlögunarferlið, sem sumir hér kjósa að kalla samningaferli, að um leið og umsókn liggur fyrir þá þurfa þjóðir að byrja að aðlaga sig að stefnu og regluverki Evrópusambandsins sem kallar á að búa til stærra bákn, nýjar stofnanir, fleira starfsfólk o.s.frv. Þar hygg ég, án þess að vera með neina kristalkúlu hér, að ég geti lofað hv. þingmanni að ég muni í það minnsta beita mér af öllu afli til að tryggja að fólk skilji, átti sig á og fái upplýsingar um það hvaða ferli er raunverulega farið af stað. Því það er ekkert teboð, það er ekki kaffispjall.