þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þessi þingsályktunartillaga lýtur að grundvallarhagsmunum íslensku þjóðarinnar. Ég treysti mér til að fullyrða að það er ekkert mál í seinni tíma sögu lýðveldisins sem getur haft jafn mikil áhrif á allt okkar samfélag og kynslóðir framtíðarinnar en það mál sem hér er til umræðu. Þetta mál er til að mynda miklu stærra hagsmunamál en Icesave-deilan. Það var deila sem leyst var í gegnum fullveldisrétt þjóðarinnar og hefði aldrei verið unnt að leysa með þeim hætti sem gert var hefði Ísland verið aðili að Evrópusambandinu. Það er staðreynd að ekki er þingmeirihluti fyrir því hér á Alþingi að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Höfum það alveg á hreinu að við værum ekki að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu ef fyrir lægi að þingmeirihluti væri fyrir aðildarumsókn að ESB. Og af því að ástæðan fyrir því að málinu er skotið til þjóðarinnar er sú að það er ekki meiri hluti fyrir málinu væri það auðvitað heiðarlegasta nálgunin hjá ríkisstjórn landsins gagnvart þjóðinni að spyrja hana beinlínis: Viltu ganga í Evrópusambandið? Það er eina rétta spurningin þegar horft er á ástæðuna fyrir því að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla á að fara fram.
Í umræðum um þetta mál hefur því verið haldið fram að við stjórnarandstöðuþingmenn treystum ekki þjóðinni. Það er fjarri sanni. Ég treysti þjóðinni en ég treysti ekki ríkisstjórninni og alveg örugglega ekki þegar farið er yfir þessa þingsályktunartillögu því að á henni er enginn bragur. Hvað á ég við með því? Framlagning þessarar tillögu er svo sannarlega söguleg. Þetta er fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan sem fram fer á vegum Alþingis síðan efnt var til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort fella ætti úr gildi sambandslögin við Danmörku og stofna lýðveldið Ísland. Í þeirri atkvæðagreiðslu kusu rúmlega 98% þjóðarinnar með því að stofna lýðveldið, verða sjálfstæð og fullvalda þjóð. En ólíkt hafast þau að stjórnvöldin þá og nú. Nú er lögð fram þingsályktunartillaga sem lýtur að viðleitni sem er til þess fallin að veikja það vald sem þjóðin tryggði sér í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem Alþingi stóð fyrir. En hvað gerist þegar jafn söguleg stund rennur upp og sú að lögð er fram tillaga að þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort landsmenn vilji sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu? Þá er bragurinn ekki meiri en svo að fram kemur þingsályktunartillaga sem fyllir ekki einu sinni fjórar blaðsíður og þá að meðtalinni greinargerð með þessari mikilvægu þingsályktunartillögu. Þingsályktunartillagan er í algjöru skötulíki. Hana skortir allar þær lykilupplýsingar sem þurfa að liggja fyrir svo að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun í þessu máli. Virðingin fyrir kjósendum er ekki meiri en svo að með tillögunni fylgir ekkert sem snýr að því ferli sem tæki við ef þjóðin segir já og velur að hefja aðlögun sína að Evrópusambandinu. Það vantar allar upplýsingar um það hver sé áætlaður kostnaður af því aðildarferli sem þá tekur við. Það vantar allar upplýsingar um það hvernig og hve mikil fjölgun yrði á starfsmönnum hins opinbera svo að hreinlega sé unnt að framkvæma þá aðlögun sem felst í aðild að Evrópusambandinu því að hún hefst strax, hún hefst strax og aðildarviðræður hefjast. Þó liggur það fyrir frá síðustu viðræðum að sambandið hefur marglýst því yfir að hér á landi þurfi að koma til umfangsmikil stofnanauppbygging ætli Íslandi að takast að aðlagast og taka upp allt regluverk Evrópusambandsins. Því til viðbótar vantar allar upplýsingar um það í þessa þingsályktunartillögu hver verður svo árlegur kostnaður okkar Íslendinga af því að vera aðili að Evrópusambandinu. Þetta er öll virðingin fyrir kjósendum. Það er ekki minnst á það einu orði hvað það kostar að segja já við aðildarferlinu og hvað það kostar að vera aðildarríki innan Evrópusambandsins. Þó liggur það ljóst fyrir að við Íslendingar, færum við þarna inn, yrðum nettógreiðendur í Evrópusambandinu. Við yrðum eitt af sjö ríkjum sambandsins sem myndum greiða meiri fjármuni til þess en við fengjum út úr því. Það liggur fyrir. Í sjálfu sér er auðvelt að reikna þetta út út frá reglum sem gilda um gjaldtöku af ríkjum sem eru aðilar að Evrópusambandinu.
Og hvað með samningsmarkmiðin sem Ísland ætlar að fara með inn í þessar viðræður? Hver eru þau? Eiga kjósendur ekkert að fá að vita hver þau eru? Nei, því að samkvæmt tillögunni er ætlunin að vinna og móta þau samningsmarkmið eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta kemur alveg skýrt fram í greinargerð þingsályktunartillögunnar. Þetta er öll virðingin fyrir lýðræðinu. Íslendingar eiga að kjósa án þess að vita hver markmiðin eru. Það er látið nægja í tillögunni að vísa til þeirra markmiða sem voru uppi fyrir 15 árum. Það er látið nægja að vísa til samningsmarkmiða í þingsályktunartillögu um aðildarumsókn frá 2009. Þar er þess þó gætt mjög dyggilega, í greinargerð með þessari þingsályktunartillögu, að segja að þetta séu ekki endilega markmið núverandi stjórnvalda í mögulega komandi viðræðum. Við vitum því ekkert um það á þessu stigi hver samningsmarkmið stjórnvalda eru. Það vantar einnig alla umfjöllun í þessari þingsályktunartillögu um þá staðreynd að hún felur það í sér að umsóknarferli sem áður fór fram eigi að hefjast að nýju. Það er skýrt. Það þýðir þá að verið er að vinna með sama samningsramma og Ísland gerði við Evrópusambandið árið 2010 og þar með öll þau skilyrði sem þar koma fram. Það er engin umfjöllun um þennan þátt í þessari þingsályktunartillögu.
Ég vil því brýna það fyrir utanríkismálanefnd að taka þessa ályktun til rækilegrar endurskoðunar við meðferð hennar í nefndinni. Það er algerlega augljóst að það þarf hreinlega að endurskrifa hana þótt ekki væri nema bara til að sýna kjósendum þessa lands lágmarksvirðingu og sýna lýðræðinu lágmarksvirðingu. Þjóðaratkvæðagreiðsla — ef litið er á skýrslu landskjörstjórnar fyrir síðustu þingkosningar þá kemur þar fram að þær kosningar kostuðu þjóðina um 640 millj. kr. Þetta er sjálfsagt ekkert stór peningur í stóra samhenginu, ekkert stór peningur. En það er alveg vitað að frá síðustu kosningum mun svona þjóðaratkvæðagreiðsla kosta ríkissjóð 600 millj. kr. Mér þykir það því lágmarkskrafa að það fari þá fram einhver lágmarksvinnubrögð við vinnslu jafn mikilvægrar tillögu og hér liggur frammi og að við vöndum okkur; að við tryggjum að kjósendur fái lágmarksupplýsingar, eins og ég nefndi í ræðu minni hér áðan, til að geta tekið upplýsta ákvörðun. Við hljótum öll, alveg sama hvar í flokki við stöndum, að vilja vinna og framkvæma störf okkar á vandaðan hátt. Ef við ætlum, í fyrsta skipti síðan lýðveldið var stofnað, að leggja upp með þjóðaratkvæðagreiðslu og spyrja þjóðina, hljótum við að vilja sinna þeim skyldum okkar að koma á framfæri við þjóðina lágmarksupplýsingum og mikilvægustu upplýsingunum svo að kjósendur geti tekið upplýsta ákvörðun. Það hljóta að vera okkar lágmarksstarfsskyldur.