157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:38]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er í hæsta máta sérstök tímalína. Hér er greinilega alveg uppgefin ríkisstjórn. Hæstv. ríkisstjórn er uppgefin á verkefninu. Hún er búin að kasta inn handklæðinu og hún vill að við tölum um eitthvað annað heldur en það sem plagar heimilin í dag. Það er bara þannig. Ég held að akkúrat út frá þeim forsendum vilji ríkisstjórnin að við séum að tala um Evrópusambandið, við séum ekki að tala um það sem plagar heimilin í dag.

En það sem mig langar að spyrja hv. þm. Eirík S. Svavarsson er: Þarf ekki að liggja fyrir kostnaður? Nú vitum við það að beinn kostnaður síðustu vinstri ríkisstjórnar var um 900 millj. kr., á verðlagi dagsins í dag um 1,8 milljarðar. Þarf ekki að liggja fyrir einhvers konar áætlun um það hvað þessi vegferð muni kosta okkur? Við getum gert ráð fyrir því að það séu 1–2 milljarðar. Þarf það ekki að liggja fyrir áður en við förum að leggja út í þennan kostnað? Við erum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu sem kostar í dag milli 500 og 600 milljónir og við erum að fara að kjósa um það hvort við eigum að fara í vegferð sem kostar kannski 1–2 milljarða. Þarf fólk ekki að fá að vita það í dag og það liggi fyrir áður en það fer að kjósa, hver verður nettókostnaður Íslands við aðildina að Evrópusambandinu? Hv. þm. Pawel Bartoszek sagðist, í Spursmálum á mbl.is, halda að þetta gætu verið kannski um 30 milljarðar, nettókostnaður af því að vera í Evrópusambandinu. Eru þetta ekki tölur sem þurfa að liggja fyrir m.a. þegar þjóðin gengur að kjörborðinu, hvað það muni kosta okkur að vera í Evrópusambandinu og hvort þessi vegferð borgi sig?