157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:40]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Hv. þingmaður nefndi beinan kostnað úr síðustu aðildarviðræðum, áætlun sem þá lá fyrir. Það er rétt, utanríkisráðuneytið gerði mat á þessu árið 2009 sem hljóðaði upp á 990 milljónir. Af því voru reyndar 570 milljónir eingöngu þýðingarkostnaður. Stjórnvöld fengu á þessum tíma styrk frá Evrópusambandinu upp á 720 milljónir sem fór aðallega til þýðinga. Það er líka rétt hjá þingmanninum að kostnaðurinn væri 1,8 milljarðar ef við værum að vísitölubinda þetta, kostnaðinn frá því fyrir 15 árum. En kostnaðurinn af þessu ferli verður miklu meiri og já, það vantar allar upplýsingar um það í þingsályktunartillögunni hver kostnaður af aðildarferlinu verði. En ég vil líka benda þingmanninum á það, af því að hann vísaði til ummæla hv. þm. Pawels Bartoszeks, að beinn kostnaður af veru okkar í Evrópusambandinu, árlegur, er ekki 30 milljarðar heldur 40 milljarðar og það leiðir beint af reglum um gjaldtöku af aðildarríkjum Evrópusambandsins.