157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:48]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir afar góðar spurningar. Þingmaðurinn spurði hér: Hvers virði eru þær yfirlýsingar sem komið hafa fram í þessu máli? Víkjum þá að fyrirliggjandi þingsályktunartillögu því að það er mjög mikilvægt að menn átti sig á því að ríkisstjórn þessa lands er hvergi búin að drepa niður fæti varðandi það hver hennar samningsmarkmið eru í þessu máli. Hvergi. Því er lýst yfir með skýrum hætti í þessari þingsályktunartillögu að eftir kosningarnar, eftir mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu, muni samningsmarkmið verða mótuð og skýrð út. Kjósendur fá ekki að vita það fyrr. Svo er vitnað í gömlu markmiðin en það er sérstaklega ítrekað í þingsályktunartillögunni að ríkisstjórn þessa lands sé ekki endilega að taka undir þau markmið. Hún er ekki endilega að taka undir þau markmið.