þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka hv. þm. Eiríki Svavarssyni fyrir mjög góða ræðu og athyglisverða. Ég get tekið undir mjög margt af því sem þar kom fram. Sérstaklega vil ég nefna að mér finnst eins og þessi þingsályktunartillaga sé bara ekki nægilega vel unnin. Það eru í rauninni ansi margar spurningar sem eru skildar eftir hérna. Ég vil t.d. meina að það sé verið að reyna að halda því að fólki og að þingmönnum að þetta snúist í rauninni bara akkúrat um orðalag spurningarinnar og eiginlega ekkert annað. Því hlýtur maður eiginlega velta fyrir sér hvað hæstv. ráðherra hafi hreinlega haft í huga þegar verið var að semja hérna. Ef maður rifjar upp það sem gerðist hér 2009–2013 held ég að eitt af því sem menn lærðu á þeim tíma var að til að svona ferli gæti farið af stað með einhverri skynsemi þyrftu menn að vera samstiga í því og það þyrfti að vera vilji til staðar um það að ganga í Evrópusambandið. Hann þarf hreinlega að vera til staðar af því að það er algerlega augljóst mál að ef menn eiga síðan að fylgja því eftir að reyna að ná einhverjum samningum, þá ætla ég að leyfa mér að segja að það sé undarlegt ef þetta snýr í rauninni ekki að því að ná sem hagkvæmustum samningi til að vera inni. Ég vil meina að ef við horfum t.d. á erindi Viðreisnar í þessu máli, þar sem þetta hefur í rauninni verið eina málið þeirra, hafi ég ekki orðið var við, ekki eina einustu mínútu, t.d. í kosningabaráttunni, að verið væri að halda þessu máli á lofti. Það er svo áberandi þegar maður sér að nú þegar Flokkur fólksins er í rauninni búinn að fá sitt þá breytist takturinn. Mig langar til að forvitnast um það hjá hv. þingmanni: Hvernig í ósköpunum ætla menn t.d. að forma þetta sem varðar íslenskan landbúnað í þessum áherslum sem hér liggja fyrir? Miðað við nýjasta búvörulagafrumvarpið virðist alla vega eins og ráðherrann sé í engum takti við íslenskan landbúnað.