157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:52]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans spurningar og hans umfjöllun, sem var kannski öðru fremur spurningar með hugleiðingum. Þingmaðurinn vék að því hér áðan hvort ekki þyrfti að vera samstaða innan ríkisstjórnar. Þarf ekki að vera þingmeirihluti svo unnt sé að fara í jafn viðamikið mál og þetta, að spyrja þjóðina þessarar spurningar?

Ég vék að því hér áðan í minni ræðu að þetta er fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan á vegum Alþingis Íslendinga síðan hér fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla 1944 í aðdraganda þess að við urðum lýðveldi. Þótt við séum með jafnstórt mál og þetta sé ég hér þrjá þingmenn stjórnarliða í þessum sal, svo mikilvægt er það. En jú, vissulega þarf þessi vilji og þessi samstaða að vera til staðar. Hún er ekki til staðar og þess vegna er þessi þjóðaratkvæðagreiðsla að fara fram vegna þess að ef ekki væri ósamstaða þá myndi þetta mál einfaldlega verða afgreitt með þingsályktun þar sem sótt er um aðild að Evrópusambandinu líkt og gert var 2009. Svo rétt er það. Í staðinn á að fara í tvöfalda atkvæðagreiðslu. Menn verða þó að átta sig á því að ef farið er í tvöfalda atkvæðagreiðslu verða allar upplýsingarnar að liggja á borðinu við fyrri atkvæðagreiðsluna. Það er sá misskilningur sem mér hefur fundist vera ómandi hér hjá of mörgum þingmönnum í dag. Það er ekki hægt að slíta þetta í sundur. Það verður þá að upplýsa og leggja allt á borðið. Það verður að leggja í greiningu á kostum og göllum aðildar að Evrópusambandinu. Þetta er spurningin og þetta er tvöfalt þjóðaratkvæði.