þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Svavarssyni fyrir prýðisgott svar og vangaveltur. Já, maður hlýtur eiginlega að velta fyrir sér hvað það er sem rekur ríkisstjórnina áfram í þessu máli. Ég hef ekki heyrt um, þótt maður hafi nú hlustað ágætlega, þá hef ég ekki heyrt kallað eftir því að það væri óskað eftir því að hér færi fram skoðanakönnun, við skulum leyfa okkur að segja um það hvort þjóðin vildi fara í Evrópusambandið eða ekki. Ég bara átta mig ekki á hvaðan þetta er komið. Maður hefur skilning á því að við séum alltaf á hverjum tíma að horfa til hagsmunagæslu fyrir Ísland og það geta auðvitað verið tímar sem kalla á að það mat verði gert jafnvel ítarlegar; kannski viljum við fórna einhverju til að fá þá niðurstöðu og leggja jafnvel í staðinn í eitthvert langt ferðalag. En ég átta mig ekki á af hverju það er núna þegar augljóst er, ef við horfum bara t.d. á stöðu Íslands á hinum ýmsu lífskjaramælikvörðum, að þá er ljóst í mínum huga að við erum ljósárum á undan Evrópusambandinu í mjög mörgum tilfellum. Þess vegna veltir maður fyrir sér: Af hverju er verið að fara þessa vegferð? Nú er það þannig að hér hafa menn verið að glíma við, og það hefur auðvitað verið helsta verkefni ríkisstjórnarinnar, að glíma við verðbólgu og vexti. Maður spyr sig: Hvað mun breytast við það að sækja um aðild að Evrópusambandinu? Erum við ekki bara í nákvæmlega sömu stöðunni hvað það varðar? Við verðum að leysa þetta mál hér heima fyrst og ef við náum að leysa það mál hér heima og ríkisstjórnin nær að axla þá ábyrgð að klára það mál kemur aftur upp spurningin: Verður einhver áhugi á þeim tímapunkti, þarna næst, til að fara í Evrópusambandið eða ekki? Ég ætla að leyfa mér að segja að svo sé ekki. Þegar maður horfir á hvað gerðist 2009–2013 nýttu menn tækifærið við efnahagshrunið, þegar íslenska þjóðin lá vel við höggi, til að reyna að smygla henni inn í Evrópusambandið. Það var bara nákvæmlega þannig sem það var.