157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:09]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir andsvarið og hlý orð í minn garð. Ég get endurgoldið þau orð og við höfum átt ágætt og gott samstarf. Varðandi upplýsingar þá tel ég að það sé, ég leyfi mér að nota orðið óþarfi, að safna of miklum upplýsingum á þessu stigi. Varðandi það hvort þjóðin fái viðhlítandi upplýsingar til að taka ákvörðun um það hvort hún vilji halda áfram í viðræðum við Evrópusambandið þá held ég að hún hafi raunverulega nægar upplýsingar til þess nú þegar. Ég skil alveg það sem hefur komið fram hér í ræðum margra í dag og gær, að mörgum finnist skorta upplýsingar en ég tel að svo sé ekki. Ég tel að þjóðin hafi þær upplýsingar sem hún þarf til að meta það hvort haldið skuli áfram viðræðum eða ekki.