157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:10]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú finnst mér hv. þingmaður vera að gefa afslátt af vönduðum vinnubrögðum í anda þess sem ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir bjóða okkur upp á í þessu máli. Þegar við fórum í þessa vegferð á sínum tíma, í tíð vinstri stjórnarinnar 2009–2013, voru samningsmarkmiðin skýr. Þá lögðum við Sjálfstæðismenn reyndar til að það yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort það ætti að fara í þessar viðræður á grundvelli þeirra samningsmarkmiða eða hvort við ættum bara að leyfa fólki að velja um það hvort við gerumst aðilar að Evrópusambandinu eða ekki. Því var hafnað þá. En samningsmarkmiðin voru skýr. Í dag eru þau mjög óljós. Í greinargerðinni kemur fram að það sé vitnað til þeirra samningsmarkmiða sem sett voru en það er líka komið að því að þau séu ekkert endilega þessarar ríkisstjórnar. Er ekki alger lágmarkskrafa fyrir hönd þjóðarinnar að hún sé upplýst um það með hvaða samningsmarkmið þessi ríkisstjórn ætlar að fara í þá vegferð (Forseti hringir.) sem farin verður, verði þetta samþykkt? (Forseti hringir.) Sem snýr að grundvallarhagsmunum íslensks samfélags og er alveg klárlega það sem ræður öllu því sem á eftir kemur.