157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:12]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir hans seinna andsvar. Auðvitað veit hann það alveg að stutta svarið við þessu er nei, að ég telji að það liggi fyrir nægar upplýsingar. En mig langar til að nefna það hér að það er reginmunur á aðferðafræðinni að gera þetta eins og við erum að gera þetta núna og hvernig þetta var gert 2009. Þá var ákveðið, með þingsályktunartillögu hér í Alþingi, að fara í aðildarviðræður. Hv. þingmaður nefnir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi viljað spyrja þjóðina um það hvort ætti að fara í viðræðurnar og að það hafi verið fellt. Ég er innilega sammála niðurstöðu Sjálfstæðisflokksins á þessum tíma. Það hefði átt að gera það. Það hefði verið miklu betra ef vilji þjóðarinnar hefði legið fyrir á þessum tímapunkti. En hann lá ekki fyrir. Vandi ríkisstjórnarinnar frá 2009–2013 var bara einfaldlega að hún var ósammála. Hún kom þessu máli ekki í gegn frekar en mörgum öðrum.