þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Svavarssyni fyrir hans andsvar. Að einhverju leyti er hann kannski viljandi að snúa út úr fyrir mér. Ég sagði það að ekkert í þessum kosningum varðaði, ef ég leyfi mér að fara styttri leiðina, já eða nei um það hvort eigi að halda áfram. Auðvitað er það þannig að ef það kemur niðurstaða um að halda áfram þá verður haldið áfram og þá kemur auðvitað til þess, eftir atvikum, að það liggi fyrir samningur og hann verður borinn undir þjóðina. Þetta er eitthvað sem mér finnst voðalega skýrt. En spurningin varðaði það hvort ég teldi líklegt að það verði utanaðkomandi þrýstingur við þessa seinni atkvæðagreiðslu ef til hennar kæmi. Utanaðkomandi — ég held bara að við séum alveg til þess fallin að standa af okkur utanaðkomandi þrýsting hvað það varðar.