þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir svör við spurningu minni. Í ljósi þess að hv. þingmaður er hluti af þeim þingflokki sem ber öðrum fremur mál þetta uppi hér á Alþingi þá vék hv. þingmaður í ræðu sinni áðan að þessu tiltekna hugtaki, sæti við borðið, sem hv. þingmönnum Viðreisnar er tíðrætt um. Þetta sæti við borðið þýðir að við fáum sex þingmenn á Evrópuþinginu. Það jafngildir á sama mælikvarða og Alþingi hálfum þingmanni. Er þetta sæti við borðið? Hvernig skilur hv. þingmaður það hugtak, sæti við borðið? Hvaða áhrif eru þetta?