157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:18]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir ræðuna. Mig langar til að vera aðeins með vangaveltur varðandi hvað það felur í sér í rauninni að ákveða að fara í samtalið við Evrópusambandið. Er einhver áhætta í því fólgin, hugsar væntanlega kjósandinn, að segja já? Ég á alltaf kost á því að segja nei síðar. Ef ég er ekki ánægður með samninginn þá get ég hreinlega neitað. Er kjósandi í rauninni að hætta einhverju? Fær hann upplýsingar t.d. um það hver kostnaðurinn er? Hvaða líkur eru á því að þessi samningur muni t.d. ekki vera þannig úr garði gerður að við þyrftum að sjá á eftir, eins og hjá okkur, auðlindunum okkar? Skiptir það endilega máli fyrir Jón og Gunnu hérna í Reykjavík því að hann eða hún eru að velta fyrir sér bara nákvæmlega sínu lífi? (Forseti hringir.) Ég leyfi mér að spyrja hv. þingmann: Þyrfti ekki að vera svolítið meira undir í raun til þess að fólk taki þessari atkvæðagreiðslu af einhverju öðru en léttúð?