þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil leyfa mér að segja að það geta hreinlega verið margar ástæður fyrir því. Við getum nefnt hérna, af því að við ræddum auðlindir, íslenskan landbúnað. Hvað er hátt hlutfall af þjóðinni sem stundar landbúnað? Það er örugglega ekki hátt hlutfall þjóðarinnar. Það er auðvitað hægt að telja fólki trú um að t.d. séu í boði einhverjar varanlegar lausnir. Ég hef alla vega ekki heyrt annað en að menn vilji alla vega skoða þann möguleika, þeir sem hafa talað fyrir þessu, að reyna að fá fram einhverjar varanlegar lausnir og undanþágur. Við höfum engin dæmi þess að það hafi verið veittar varanlegar undanþágur. Það er hins vegar alveg hægt að láta hlutina líta þannig út að menn geri eitthvað yfir eitthvert árabil en séu engu að síður háðir þeirri ákvörðun að Evrópusambandið eða meiri hluti þar gæti t.d. ákveðið að breyta hlutunum fyrirvaralaust eins og gerðist t.d. núna varðandi Írana. Þeir sem munu væntanlega kjósa í þessari atkvæðagreiðslu eru ekkert endilega að taka tillit til þessa, (Forseti hringir.) eru ekki einu sinni að velta þessu fyrir sér. Það er það sem ég á við þegar ég segi léttúð. (Forseti hringir.) Mér finnst sérkennilegt að við skilum alla vega ekki gleggri upplýsingum til fólks um nákvæmlega hvað það þýðir að segja já og hvað það þýðir að segja nei.