þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Sú vinna hófst að nokkru leyti en aðalatriðið var að í síðustu tilraun, sem núverandi ríkisstjórn virðist ekkert hafa lært af, var bara ráðist í kaflana sem eru auðveldastir. Evrópusambandið útskýrði það fyrir Íslendingum að báknið væri ekki nógu stórt, stjórnkerfið væri ekki nógu stórt, við værum ekki með til staðar þær stofnanir sem þyrfti til að Ísland væri tilbúið að ganga í Evrópusambandið. Umræðunum var sjálfhætt, þeim var hætt af hálfu vinstri stjórnarinnar sem stofnaði til þeirra.
Ég spyr hvort hv. þingmaður viti hvernig þetta gengur fyrir sig í prinsippinu. Umsóknarríki í aðildarviðræðum byrjar að laga sig að Evrópusambandinu á meðan viðræðum stendur, ekki eftir að búið er að gera einhvern samning sem menn greiða atkvæði um. Aðlögunin hefst þá og þegar þegar viðræðurnar hefjast.