þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans seinna andsvar. Segjum bara sem svo að ég taki bara það sem hv. þingmaður segir hér, að aðlögunin byrji strax, og hún byrjar þá bara strax. Það er væntanlega hægt að halda því fram að það sé vilji Íslands að ganga í Evrópusambandið ef það annaðhvort sækir um … (SDG: Aha. )— Aha. Þetta er nú kannski rosaleg uppljóstrun hér hjá þeim sem hér stendur. En það er væntanlega vilji að ganga í sambandið ef við fáum nægilega góðan samning, „aha“ kom þarna á milli, ef við fáum nægilega góðan samning. Ef við byrjum einhverja aðlögun til þess að geta unnið þetta áfram, hvað gerist þá ef við segjum nei við samningnum? Þá væntanlega hættum við aðlögun og núllum þetta út.