157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:40]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í mínum huga, persónulega, snýst stóra spurningin um fullveldi, þ.e. að við Íslendingar ráðum örlögum okkar sjálf eins og við höfum gert. Við höfum ekki bara ráðið þeim sjálf síðastliðin 82 ár, okkur hefur farnast svo vel að við erum ein ríkasta og farsælasta þjóð heims. Við erum með gjaldmiðil sem tekur mið af því hvernig efnahagsástandið er á Íslandi, hvernig það er heima fyrir en er ekki miðaður við það hvernig efnahagsástandið er í öðrum löndum. Þetta er stóra spurningin. Og ég verð að segja: Ég treysti þjóðinni til að hafa þetta á bak við eyrað þegar þjóðin gengur að kjörborðinu. En ég tek undir með hv. þingmanni, það er mjög skrýtið hvernig til þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu er boðað og hvernig samningsmarkmiðin, eins og hv. þingmaður segir, eiga öll að koma í ljós einhvern tímann. En um hvað erum við þá að kjósa?