157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:42]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir fína ræðu. Hann talar um hræðsluáróður af hendi ríkisstjórnar, sem ég tek fullkomlega undir. Já, þetta er risastórt mál, að tala um fullveldisafsal sem felst í aðild að ESB. Sammála þarna líka. Eins og þingmaðurinn þá treysti ég þjóðinni til að verja fullveldið.

Mig langar að spyrja þingmanninn út í hræðsluáróður ríkisstjórnarinnar. Hann birtist hérna í greinargerð með þingsályktunartillögunni, m.a. þar sem verið er að ýja að óstöðugleika og óvissu og áhættu og ég veit ekki hvað. Það er verið að tala um samtryggingu ESB, þar á meðal á sviði öryggis- og varnarmála og efnahagslegs öryggis. Þannig að mig langar að spyrja þingmanninn: Finnst honum ekki fullkomlega bæði (Forseti hringir.) óviðeigandi og furðulegt tal, sérstaklega hæstv. utanríkisráðherra og hennar fylgifiska, um að það sé eitthvert skjól í ESB, t.d. í varnar- og öryggismálum (Forseti hringir.) eða í efnahagslegum skilningi, í bandalagi sem setti t.d. öryggistolla á Ísland?