þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, það er mjög villandi umræða að segja að hér sé komið eitthvert nýtt ástand. Við urðum sjálfstæð þjóð áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk. Við vorum hér með kalt stríð, kjarnorkuflaugar á leiðinni til Kúbu. Við vorum með styrjaldir í Mið-Austurlöndum. Við vorum með Evrópu sem leit þá þannig út að það var einræði í Portúgal, á Spáni, í allri Austur-Evrópu og svo Sovétríkjunum og herforingjastjórn í Grikklandi. Við erum búin að vera með stríð í Víetnam og við erum búin að búa við alls konar. Í áratugi höfum við búið við alls konar ástand í heiminum og hefur okkur eitthvað farnast illa við það? Nei. Hvar höfum við lagt traust okkar í öryggis- og varnarmálum? Í NATO með tvíhliða varnarsamningi við Bandaríkin. Það er eina þjóðin sem getur komið okkur til varnar ef á okkur verður ráðist, við skulum bara hafa það algerlega á hreinu: Eina þjóðin sem getur komið okkur til varnar ef á okkur verður ráðist.