157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir prýðisgott svar. Alveg hárrétt, Bandaríkin eru eina ríki heims sem geta komið Íslandi til varnar. ESB eða Evrópuríki búa ekki yfir þeim vörnum sem Bandaríkin búa yfir, ef það er einhver hér sem er að vaða í villu og svíma hvað það varðar. Í aðildarviðræðum eða aðlögunarviðræðum Jóhönnustjórnarinnar hinnar fyrri höfðu ekki hafist viðræður í sex köflum. Finnst hv. þingmanni ekki að það þurfi að upplýsa almenning um hvaða skilyrði af hálfu ESB gerðu það að verkum að ekki var unnt að opna kafla um brýn hagsmunamál á borð við sjávarútveg, landbúnað og dóms- og innanríkismál?