þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Jú, ég tel að það sé alveg augljóst að auðvitað á að upplýsa þjóðina um það. Stefan Füle sagði á fundi með Össuri Skarphéðinssyni að það væru engar varanlegar undanþágur. Það var árið 2012. Hæstv. utanríkisráðherra sagði hér að nú væri staðan breytt; Evrópa væri allt öðruvísi og það væri allt breytt. Nokkrum dögum seinna kom Heather Grabbe, held ég að hún heiti, einn helsti sérfræðingur í stækkunarmálum Evrópusambandsins, og sagði að 95% af regluverkinu væri ekki hægt að fá varanlegar heimildir fyrir í dag. Það hefur margt breyst í heiminum, en það hefur ekkert breyst hjá Evrópusambandinu um það að fá undanþágur og ég held að það sé bara rétt að þjóðin verði upplýst um það. Þjóðin verði líka upplýst um það ef í einhverjum samtölum úti í Evrópu hafi komið fram að Ísland eigi allt í einu að fara að fá einhverjar undanþágur sem aðrar þjóðir hafa ekki fengið. Ég held að það væri bara allt í lagi að upplýsa okkur um það ef einhver samtöl í Brussel hafa leitt til þess.