þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans innblásnu ræðu. Það er um margt áhugavert að fylgjast með rauða þræðinum í málflutningi minni hlutans um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og um Evrópusambandið. Mjög gjarnan er það vandamálið hvað Evrópusambandið sé miðstýrt og allt vald hjá Brussel og á hinn bóginn er það vandamál að Evrópusambandslöndin séu svo ósammála og komist ekki að sameiginlegri niðurstöðu eins og var nefnt hérna í samhengi við Covid. Ég væri til í að heyra frá hv. þingmanni hvers konar verðbólga er ómanngerð, en það er svo sem ekki hluti af þessari tilteknu umræðu. Hv. þingmaður talaði mikið um sjálfstæði og í samhengi sögunnar mikið í sambandi við utanríkisstefnu. Er það skilningur hv. þingmanns að ríki Evrópusambandsins séu ekki sjálfstæð og reki ekki sjálfstæða utanríkisstefnu? Við skulum láta þetta duga að þessu sinni.