þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir hans fyrri spurningu. Mig langar nú bara að benda á — auðvitað fáum við bara tíu mínútur og það hefði verið hægt að fara yfir vítt svið — að ef við tölum bara um efnahagsástandið í Evrópu þá segja 80% af fyrirtækjum í Evrópu í könnun að samkeppnishæfni álfunnar fari hríðversnandi. Það er vegna regluverks Evrópusambandsins. Frakkland er svo gott sem gjaldþrota ríki. Atvinnuleysi ungs fólks í mörgum af Evrópusambandslöndunum er slíkt að vaxtastigið skiptir engu máli af því að það hefur enginn efni á því að kaupa íbúðir og svona er hægt að halda lengi áfram. En ég held að hv. þm. Ingvar Þóroddsson átti sig á því að hér þarf að breyta stjórnarskrá Íslands. Við erum að afsala okkur hluta af fullveldi Íslands með því að ganga í Evrópusambandið. Við þurfum ekki að gera breytingar á stjórnarskrá ef við gerum fríverslunarsamninga við önnur lönd. Þetta er ekki fríverslunarsamningur. Við erum að ganga í ríkjasamband þar sem utanríkisráðherra Evrópusambandsins mun mæta (Forseti hringir.) og semja fyrir hönd Íslands en ekki utanríkisráðherra Íslands.