þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir hans spurningu. Hann gleymdi líka að nefna að í þessu sama viðtali segir hagfræðingurinn að ábatinn sé meiri en kostnaðurinn. Hér er verið að tala um Króatíu, svolítið gaman að það sé verið að tala hérna um Króatíu þegar við tölum um lífskjör og hvar þjóðir standa. Ísland er nr. 1, 2 og 3 á listanum en þegar Króatía gekk inn þá held ég að hún hafi verið nr. 43 á listanum. Þetta er akkúrat málið. Hverjir yrðu meðreiðarsveinar okkar inn í Evrópusambandið? Það er Norður-Makedónía, Moldóva og mögulega Úkraína og aðrar þjóðir. Hverjir haldið þið að séu að fara að borga fyrir innviðauppbyggingu í Moldóvu eða Norður-Makedóníu? Eru það ekki ríkustu þjóðirnar? Yrði það ekki ein ríkasta þjóðin, Ísland, sem þyrfti að borga þann reikning og leggja sitt af mörkum? Hér hefur verið vitnað í seðlabankastjóra lands sem var tugum sæta á eftir okkur í lífskjörum. (Forseti hringir.) Ég hefði gaman af að sjá hv. þingmann taka þessa ræðu við t.d. Svisslendinga.