þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Þetta eru skemmtilegir orðaleikir hér frá þingmönnum stjórnarflokkanna, að velta því fyrir sér hvort Ísland eða Þýskaland sé fullvalda ríki og hvað sé að vera fullvalda ríki. Við myndum fá sex þingmenn á Evrópuþinginu, sex þingmenn. Það er lágmarkið. Við ættum líklega að vera með 0,03 þingmenn ef farið yrði eftir höfðatölu en það eru sex þingmenn sem við fáum að lágmarki. Írar eru með 14 þingmenn og við sjáum hvernig stóru þjóðirnar brutu á Írum eftir 50 ára samning. Írski flotinn situr bundinn við kajann og horfir á Hollendinga og Pólverja veiða írskan makríl. Þetta er Evrópusambandið og menn velta því fyrir sér hvort Þýskaland sé fullvalda ríki. Ef Þýskaland væri að ganga í Evrópusambandið í dag þá þyrfti Þýskaland líklega líka að breyta stjórnarskrá sinni til þess að aðlaga hana þessu ríkjasambandi.