157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:54]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að upplýsa mig um fjölda þingmanna sem Íslendingar fengju á Evrópuþingið sem og fjölda þingmanna sem Írar myndu fá. En ég er með eina spurningu til hv. þingmanns og hún er svohljóðandi: Er Þýskaland fullvalda ríki?