þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og jú, við verðum að treysta á það núna að utanríkismálanefnd kalli eftir þessum gögnum. Auðvitað hefði verið miklu betra að þetta hefði allt legið fyrir fyrir fram. Ef hæstv. utanríkisráðherra hefði haft eðlilegt samráð við nefndina við vinnu þessa máls hefði nefndin væntanlega kallað eftir því á slíkum fundum og það lægi fyrir núna. Ég hygg líka að utanríkismálanefnd, svo og samráð við þjóðina í gegnum samráðsgátt, hefði bætt þessa greinargerð til mikilla muna en hér hefur verið tekist á um hvort hægt sé að semja um eitthvað eða ekkert. Þau gögn sem ég hef lesið í gegnum tíðina ganga út á að um afskaplega lítið sé að semja því Evrópusambandið gengur út á sameiginlegt regluverk. Það er það sem þetta gengur út á. Það virðist eins og hæstv. utanríkisráðherra og forsætisráðherra séu hér að ræða um að það séu einhverjar miklar breytingar í vændum hjá Evrópusambandinu og mikil opnun fyrir ríki eins og Ísland að ganga inn í það. Það hafa ekki verið lögð fram nein gögn sem færa rök fyrir því að svo kynni að vera, ekki nein.
Virðulegur forseti. Ég kom inn á skýrleikann hérna áðan. Auðvitað þurfa að vera samningsmarkmið. Þjóðin þarf að vita þegar hún gengur til kosninga: Ef ég segi já, hvað á að fara að ræða við ESB? Hér í greinargerðinni er vísað í samningsmarkmið Jóhönnustjórnarinnar en þeir sem horfðu á blaðamannafundinn síðasta föstudag, þegar blaðamaður spurði um þetta, þá var formaður Flokks fólksins fljót að segja nei, nei, nei, þannig að það er mjög óskýrt hver samningsmarkmiðin eru og hér hefur verið gengið eftir sumum stjórnarliðum og ráðherrum í því að ræða nákvæmlega það og við því fást mjög mismunandi svör, mjög mismunandi. (Forseti hringir.) Þess vegna hefði þetta átt að standa í greinargerð þingsályktunartillögunnar sjálfrar. Í það minnsta hvet ég hv. utanríkismálanefnd til að kalla eftir öllum þessum gögnum (Forseti hringir.) og gera þetta skýrara þannig að nefndarálitið verði þó alla vega skýrt hvað þetta varðar.