þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég bara get ekki sagt það nógu oft að þetta er ekki nógu skýrt í þessu plaggi sem hér liggur fyrir, þ.e. út frá þeirri kröfu að þegar farið er í þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi að vera skýrleiki. Fólk þarf að vita hvað það er að kjósa um. Hvað þýðir það sem ég er að fara að kjósa? Auðvitað erum við upptekin af okkar auðlindum, eðlilega, þessi litla þjóð í þessu frábæra landi sem er svo ríkt af auðlindum. Í samningsmarkmiðunum síðast, hjá síðustu ríkisstjórn, er t.d. talað um að það eigi að hafa eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er. Fyrir mér er þetta ekki nóg, alls ekki nóg.
Virðulegur forseti. Eitt eru sjávarútvegsauðlindirnar en nú hef ég líka mikinn áhuga á norðurslóðamálum. Þar kunna að vera ýmsar auðlindir sem við jafnvel vitum ekki af í dag. Hvaða áhrif hefur það ef við göngum í Evrópusambandið? Hver er okkar réttur til að eiga og nýta þær auðlindir (Forseti hringir.) sem finnast á okkar landgrunni og í okkar umsjá?