157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:19]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir prýðisgott andsvar. Það kemur einmitt hérna fram í 5. kafla í greinargerðinni, með leyfi forseta:

„Ákveði þjóðin að halda áfram viðræðum um aðild að ESB myndu stjórnvöld vinna uppfærð samningsmarkmið …“ — Uppfærð samningsmarkmið frá Jóhönnustjórninni, hinni fyrri.

Þetta er því allt mjög merkilegt sem við erum að verða vitni að hér í þessari umræðu. Síðan er það hitt. Þetta er risastórt mál. Við erum að tala um fullveldisafsal. Við erum ekki bara að tala um áframhaldandi aðlögunarviðræður á grundvelli samningsmarkmiða frá Jóhönnustjórninni fyrri. Þetta er risastórt mál, fullveldisafsal sem felst í aðild að ESB, það krefst stjórnarskrárbreytinga.

Mig langar að spyrja hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur hvort henni finnist þetta ekki þunnur þrettándi, (Forseti hringir.) þessi þingsályktunartillaga sem við erum með hér í höndunum, þegar við erum í rauninni að fjalla um fullveldisafsal (Forseti hringir.) ákveði þjóðin að fara þessa leið.