157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:22]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágætt erindi. Hún vék að einum af lykilþáttum í aðdraganda þessa alls sem voru síðustu kosningar og niðurstöður þeirra. Í framhaldi af því má velta fyrir sér, eins og hv. þingmaður var að gera og fleiri hafa gert, hvert hið raunverulega umboð er til að hefja þessa vegferð. Þann 1. september 2023 birtist í fjölmiðlum viðtal við hæstv. forsætisráðherra þar sem hún víkur m.a. að því að þetta snúist ekki bara um traust gagnvart Samfylkingunni, með leyfi forseta, því að hún upplifði á ferð sinni um landið að alls staðar var afstaða fólks að það vilji að stjórnmálamenn geri það sem þeir segjast ætla að gera.

Frú forseti. Á öðrum stað í þessu sama viðtali, sem birtist 1. september, þá segir hæstv. forsætisráðherra:

„Og við getum sýnt að við segjum ekki bara hvað sem er til að fá kosningu og vera vinsæl til skamms tíma. Ég er bara hreinskilin með það að ég er að bjóða krafta mína til að leiða næstu ríkisstjórn á þeim forsendum að geta skilað því sem ég lofa og ég sé ekki fram á það að það sé almenn samstaða á Íslandi um að ganga inn í Evrópusambandið.“

Frú forseti. Ég hef vitnað í fleiri ummæli í dag eftir hæstv. forsætisráðherra. Þau eru öll meira og minna á þessa leið, enda var það auðlesið í aðdraganda kosninganna að í hvert skipti sem hæstv. forsætisráðherra lýsti því yfir að það væri ekki stefna síns flokks að hefja þessa Evrópuvegferð þá reis fylgið. Niðurstöður kosninganna tala svo sínu máli. Það var vissulega einn flokkur algerlega skýr um að hann vildi fara inn. Það er Viðreisn, það liggur öllum ljóst fyrir.

En það sem ég velti fyrir mér, og er spurning mín til hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, er að hér ekki bara hliðrun á stefnu, hér er ekki bara aðeins verið að beygja, hér er ekki bara aðeins verið að sveigja (Forseti hringir.) í samningum við ríkisstjórnarmyndun, er ekki hv. þingmaður sammála mér í því að hér er kúvending?