þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og ég fór yfir í ræðu minni þá er alveg ljóst að öllu sem var lofað fyrir kosningar frá flokki hæstv. forsætisráðherra — að ekkert af því hefur gengið eftir. Ekkert. Engin sleggja. Vextir og verðbólga hafa ekkert farið niður, ekkert vegna aðgerða þessarar ríkisstjórnar heldur akkúrat í öfuga átt. Hér hefur ríkisstjórnin aukið á verðbólguna og hún stöðvaði vaxtalækkunarferli Seðlabankans sem þó var hafið í tíð síðustu ríkisstjórnar. Það er því alveg augljóst að hér er ekki verið að standa við neitt af þeim loforðum sem gefin voru fyrir kosningar og þá er farið í það að horfa út fyrir landsteinana. Það er auðvitað, virðulegur forseti, mjög þekkt í pólitík að þegar erfitt er heima fyrir þá er ágætt að fara að ræða um alþjóðamálin. Það er alveg ljóst að hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, sagði nákvæmlega þetta þegar hún tók við Samfylkingunni. Það var reyndar tvennt sem ég minnist að hæstv. forsætisráðherra hafi ákveðið að leggja til hliðar, það var Evrópusambandsumræðan og stjórnarskrárbreyting. Hvað er boðað í þessari þingsályktunartillögu? Bæði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB og í kjölfarið auðvitað stjórnarskrárbreyting. Hér er því verið að tala algjörlega þvert á það sem stefna Samfylkingarinnar var.
Virðulegur forseti. Ég kom því ekki að áðan en hann er svo áhugaverður þessi viðsnúningur hjá Flokki fólksins sem nú styður þetta mál á þeim forsendum að þjóðin eigi að ákveða og það sé beint lýðræði. Ég hef ekki enn heyrt svör frá þingmönnum eða ráðherrum Flokks fólksins um það hvernig þau muni greiða atkvæði í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Út frá þeim rökum hljóta þau líka að segja: Já. Út af því að þá fáum við einhvers konar samning og það sé þá hægt að kíkja í einhvern pakka og þá sé það þjóðarinnar að ákveða. Þá segi ég: Viðsnúningurinn er nú víðar en bara hjá Samfylkingunni, en þar er hann augljós.