157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:27]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir að það voru kannski ekki eingöngu athugasemdin um aðlögunarviðræður að ESB sem urðu til þess að fylgið fór hækkandi, hv. þingmaður nefndi annað atriði sem var stjórnarskráin. Ég held reyndar að málin hafi verið þrjú og það þriðja sé stærra en stjórnarskrármálið, en það var orðræðan um algerlega nýja nálgun hæstv. forsætisráðherra og Samfylkingarinnar í útlendingamálum. (BHar: Rétt, takk fyrir.) Bara til að það sé skrásett, frú forseti.

Mig langar hins vegar að grípa aðeins niður í þær vangaveltur og þá spurningu sem ég fékk í dag og ég gat ekki svarað nema bara eftir minni eigin tilfinningu. Þetta er bara þannig spurning, þú getur ekki sannað neitt en þú getur fengið tilfinningu fyrir þessu, og fólk kýs jafnvel eftir tilfinningu. Spurningin er: Er þetta málið sem þurfti að grípa til til að losna undan umræðunni í þingsal og í samfélaginu um verðbólgu, vexti og hækkandi atvinnuleysi?