þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ágætu ræðu. Hann nefnir hér nokkur mengi innan hverra er að hans mati ekki meiri hluti fyrir aðild, eins og atvinnurekendur, verkalýðshreyfingin, jafnvel ríkisstjórn — sem ég held reyndar að sé ekki rétt — eða Alþingi. En það er kannski eitt þýði sem skiptir miklu máli þar sem ýmislegt bendir til að stuðningur við aðild hafi aukist og það er þjóðin. Í mörgum skoðanakönnunum, og flestum skoðanakönnunum frá árinu 2022, hefur verið meiri hluti annaðhvort fyrir aðild, fyrir þessari atkvæðagreiðslu, fyrir því að fara í viðræður eða fyrir upptöku evrunnar.
Mig langar reyndar að spyrja að öðru. Þingmaðurinn nefnir hér oft og notar orðið aðlögunarviðræður sem er í raun ekki góð þýðing á orðinu „accession talks“ en mér finnst það hafa oftast verið notað af andstæðingum ESB til að gefa því neikvæða mynd. Þetta minnir á Star Trek þættina þar sem fólk var einhvern veginn aðlagað. Borg aðlagaði fólk og þetta á að gefa okkur neikvæða tilfinningu, að við séum að fara að vera samlöguð hinu vonda Evrópusambandi. En gott og vel, við skulum aðeins gefa okkur að það sé kannski eitthvert sannleikskorn bak við þetta. Það er vissulega þannig að þegar flest ríki ganga í sambandið er farið í gegnum hvernig þeim gangi að uppfylla ákveðin skilyrði, farið í gegnum lagasafn landsins og séð hvernig það samrýmist ESB-löggjöf. Síðan þegar þeim árangri hefur verið náð, og þannig hefur þetta verið í Mið- og Austur-Evrópu, þá eru ríkin komin á grænt.
Mig langaði bara að velta fyrir mér: Getur hv. þingmaður gefið eitthvert dæmi um svona vonda aðlögun sem átti sér stað síðast þegar við gengum í gegnum þessar „aðlögunarviðræður“, og þær stóðu yfir í fjögur ár, þar sem við vorum látin aðlagast einhverju sem klárlega var vont fyrir okkur?