þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek og formanni utanríkismálanefndar kærlega fyrir að koma og eiga orðastað við mig. Nei, get ég bent á eitthvert vont í síðustu aðlögunarumræðum. Þetta snýst svolítið um merkinguna vont. Okkur tókst ekki að klára það ferli. Ég hef ekki, ekki svo ég muni, hvorki í mæltu máli né rituðu, haldið því fram að Evrópusambandið sé einhvern veginn alvont. Það sem ég var einfaldlega að benda á og reyna að útskýra, a.m.k. út frá minni þekkingu, er hvað felst í því ef sagt er já í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram undan er. Hvað mun það þýða? Hvað mun gerast ef við segjum já? Þá verður farið í aðlögunarviðræður, það liggur alveg fyrir eins og ég skil málið. Er það einhver fórnarkostnaður? Já, eflaust fyrir þá sem vilja ekki ganga inn í Evrópusambandið, hvernig sem þeir líta á hlutina. Það eru einhverjir þar. Sumir þingflokkar eru þar, þeir vilja bara hreinlega ganga inn í Evrópusambandið, ef ég skil þá rétt, vegna þess að þeir hafa lengi verið á þeirri skoðun, alveg óháð þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, hafa haft hana lengi, sumir alveg frá því að þeir voru stofnaðir. Ég hef velt fyrir mér í þessari umræðu hvort við séum á einhvers konar villigötum varðandi ferlið. Hvort það hefði til að mynda bara verið hreinlegra að spyrja þjóðina: Viljið þið ganga í Evrópusambandið eður ei? Sérstaklega út frá því að aðlögunarferlið, ef ég skil það rétt, er skilgreint. Út úr því mun eitthvað koma. Þeir sem vilja segja já vilja væntanlega fara inn í Evrópusambandið eða a.m.k. hefja vegferðina. (Forseti hringir.) En að ég telji það ferli eða Evrópusambandið alvont. (Forseti hringir.) Nei, ég held að hv. þingmaður sé að misskilja mig þar.