157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:50]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni fyrir hans ágætu ræðu hér áðan. Það er margt í henni sem ég get tekið undir. Hv. þingmaður vék nokkuð ágætlega að þáttum sem snúa að upplýsingum og hvað þarf að liggja fyrir varðandi upplýsingar í þessu máli. Ég fór yfir það í ræðu minni fyrr í dag að í þessari þingsályktunartillögu stendur eiginlega ekki steinn yfir steini þegar kemur að upplýsingagjöf til kjósenda þessa lands. Það vantar í raun allar upplýsingar að mati þess sem hér stendur inni í þingsályktunartillögunni og í ljósi þess að þingmaðurinn fór hér ágætlega yfir það áðan að ríkisstjórnin og stjórnvöld hér þyrftu að stuðla að upplýsandi umræðu, þurfa þá ekki allar lykilupplýsingar að liggja fyrir fyrir almenning og kjósendur. Ég vil gjarnan biðja þingmanninn um að fara aðeins betur yfir þessi atriði úr hans ræðu og hvað hann telji að þurfi að liggja fyrir af helstu upplýsingum, t.d. mögulegur kostnaður af aðild, mögulegur kostnaður af aðildarferli eða þá bara þættir eins og samningsmarkmiðin. Hver ættu þau að vera? Þetta eru allt lykilþættir sem ekkert er fjallað um í þessari þingsályktunartillögu. Þarna er ekki að finna þau samningsmarkmið sem þessi stjórnvöld ætla að hafa í mögulegum komandi umræðum. Þurfa kjósendur ekki að fá upplýsingar um þetta svo þeir geti tekið upplýsta ákvörðun og raunverulega afstöðu til þessara tveggja spurninga?