157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:53]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurningarnar. Jú, það sem ég hjó eftir og sló mig var þegar hæstv. forsætisráðherra sagði á kynningarfundi um þingsályktunartillöguna sjálfa að við þyrftum ekkert að vita allt um Evrópusambandið til að taka ákvörðun. Nú? Ég myndi halda að meiri upplýsingar um Evrópusambandið væru einmitt forsendan fyrir því að taka upplýsta ákvörðun, forsendan. Það er ekki eins og Evrópusambandið sé ekki þekkt stærð. Það er ekki eins og það sé eitthvert vandamál að fá upplýsingar frá Evrópusambandinu. Við eigum mikið og gott samstarf við Evrópusambandið þótt við séum ekki þar í innsta hring. Það hefur ekki verið neitt vandamál, ekki svo ég viti, þannig að ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni. Ég held að það þurfi að liggja fyrir kostnaður og samningsmarkmið. Ég myndi halda að við þyrftum að fara langt með að skoða hvort það sé yfirhöfuð einhver möguleiki á að fá samning sem, a.m.k. ef tekið er mark á orðum hæstv. utanríkisráðherra, hún geti skrifað undir. Hún sagði í gær, með leyfi forseta, að hún myndi ekki skrifa undir samning sem felur í sér afsal á auðlindum þjóðarinnar. Ég myndi bara vilja fá þetta strax frá Evrópusambandinu. Ég myndi halda að fólkið í landinu vilji það líka. Ég ætla að leyfa mér að segja að meiri upplýsingar hljóta að vera betri upplýsingar. Einhvers konar feluleikur um hvað hefur verið sagt í Brussel — fáum þetta bara allt upp á borðið, tökum heiðarlega (Forseti hringir.) umræðu og leyfum fólkinu að kjósa.