þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni fyrir hans ágætu svör við spurningum mínum. Í ræðu hv. þingmanns áðan vék hann að dagsetningum þessa máls, þ.e. hvernig tímalínan í þessari þingsályktunartillögu er einhvern veginn að teiknast upp. Við sjáum að þingið mun væntanlega ræða þetta mál, ég vona vel, enda hefur það komið fram í þessari umræðu hér síðustu tvo daga að það er gríðarlega margt sem þarf að laga í þessari þingsályktunartillögu. Það þarf að bæta kjöti á beinin. Varðandi dagsetningarnar er þetta einhvern veginn þannig að við sjáum fram á að jafnvel næstu mánuði, a.m.k. næstu tvo mánuði, verði umræða hér á þingi um þessa þingsályktunartillögu og að hún fái sína afgreiðslu. Síðan erum við bara einfaldlega í sveitarstjórnarkosningum og síðan fara Íslendingar í sumarfrí. Þegar þeir koma heim úr sumarfríi eiga þeir bara að fara að kjósa. Telur þingmaðurinn því að hér sé yfirleitt eitthvert alvörusvigrúm fyrir umræðu um jafn mikilvægt hagsmunamál — sem ég hef leyft mér að kalla, að það sé hagsmunamál sem snúi að framtíð þjóðarinnar og næstu kynslóða, sem við eigum hér að kjósa um? Telur þingmaðurinn að þessi uppsetning sé til þess fallin að dýpka umræðuna? Telur þingmaðurinn að það væri eðlilegt — hv. þingmaður, afsakið, virðulegur forseti — að hér ætti raunverulega bara að færa (Forseti hringir.) þessar dagsetningar til og að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram síðar þegar svigrúm er til þessarar umræðu?