þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér risastórt mál, þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið, hvorki meira né minna. En einhverra hluta vegna, eins ótrúlega og það kannski hljómar, þá finnst mér sem ríkisstjórnin, og jafnvel stjórnarmeirihlutinn allur, geri fulllítið úr þeirri staðreynd. Orðaval þeirra um þennan risastóra atburð, þetta risastóra hagsmunamál íslensku þjóðarinnar, er eitthvað á þá leið að hér í lok sumars geti landsmenn skotist í huggulegan bíltúr og kosið um hvort þeir vilji ekki fá aðeins meiri upplýsingar. Þetta snúist bara um aðeins meiri upplýsingar. Hver vill ekki meiri upplýsingar? Ég get vel skilið að það hljómi huggulega. Það er gaman að fara í bíltúr og kaupa sér ís og fá meiri upplýsingar, það er ekkert að því. En hér undir er miklu stærra mál en það og ég veit ekki af hverju stjórnarmeirihlutinn kýs að gera svona lítið úr þessum atburði. Einhverra hluta vegna er það hins vegar staðan. Ég ætla að staldra við þann þátt málsins í mínu innleggi á þeim tíu mínútum sem ég hef í þessari umræðu.
Ég vil byrja á að segja að ég er í litlum vafa um það, alla vega þangað til annað kemur í ljós eða nýjar upplýsingar berast, og það er mín einlæga skoðun, að Íslandi og hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Það hefur verið mín skoðun lengi. Það á ekki að koma neinum á óvart þó ekki væri nema bara fyrir heitið á flokknum sem ég kýs að eyða kröftum mínum í, sem er Sjálfstæðisflokkurinn. Við viljum sjálfstæði Íslands. Við viljum ekki vera undir áhrifum, svo að við tökum ekki dýpra í árinni, frá öðrum þjóðum í okkar ákvarðanatöku, í okkar fullveldi og í okkar lífi. Það hefur verið okkur til góðs í áratugi, allt frá fyrri parti síðustu aldar. Þrátt fyrir að stríð og styrjaldir hafi geisað þá reyndist það okkur vel, þessari örþjóð úti í ballarhafi, að vera sjálfstæð og ég tilheyri þeim flokki sem telur betra að svo verði áfram. En látum þá staðreynd liggja aðeins á milli hluta.
Mig langar að beina athygli minni að því máli sem hér liggur fyrir, þingsályktunartillögu um áframhald, eins og það er orðað, á viðræðum við Evrópusambandið. Ég geri þó stóran fyrirvara við orðið „áframhald“ eftir 13 ár eða hvað svo sem það er. En mig langar að staldra við þá staðreynd og gera að umtalsefni að það eru engin efnisatriði í þessari þingsályktunartillögu, ekkert um það hvað fólk á í raun að kjósa um. Það á vissulega að spyrja: Vilt þú halda áfram viðræðum við Evrópusambandið? Já eða nei? Gott og vel. En hvað þýðir það? Er það í boði, er það nógu gott, að slengja svona spurningu fram þegar ekkert meira fylgir gögnum málsins? Það fylgir t.d. ekkert með um þá einföldu spurningu, þó ekki væri nema það: Af hverju? Af hverju vill ríkisstjórnin fara í þessa vegferð? Af hverju vill ríkisstjórnin ræða við ESB? Því hefur enginn svarað. Við vitum auðvitað af hverju. Það er einfaldlega af því að ríkisstjórnin getur ekki komið sér saman um af hverju. Allt í lagi. Þá vitum við ekki af hverju. Og ég ætla að leyfa mér að segja að aldrei áður í sögu Evrópusambandsins ætlar þjóð að fara að ræða við ESB án þess að geta sagt af hverju hún vilji vera þar. Eins og það sé eitthvert aukaatriði í málinu. Af einhverjum ástæðum hafa þjóðir haft áhuga á að sækja um aðild, t.d. vegna þess að margar þjóðir hafa ekki verið jafn farsælar og Íslendingar í sinni hagstjórn og í sínum tækifærum. Þær þjóðir vissu af hverju þær vildu ganga í Evrópusambandið en hér er ekki einu orði vikið að því. Nú allt í lagi. Hverju svarar ríkisstjórnin? Hverju svara hæstv. ráðherrar þegar spurt er að þessu, eins og ég heyrði að spurt var, hvort sem það var í gær frekar en í dag? Þjóðin veit það. Þjóðin veit af hverju. Já, gott og vel. Af hverju er þá kannski ekki eytt eins og einni setningu í það í þessari annars rýru þingsályktunartillögu sem við ræðum hér? Af hverju er ekki ein setning um af hverju fyrst þjóðin veit það? Ég heyrði hæstv. utanríkisráðherra í Silfrinu í gærkvöldi segja: Já, við erum að fara í þetta út af hagsmunum heimilanna. Nú, segðu okkur meira hæstv. utanríkisráðherra. Segðu okkur meira. Hvernig nákvæmlega er hagsmunum heimilanna betur borgið í Evrópusambandinu? Er það kannski út af þessari ótrúlegu umræðu um að vextir séu lægri í Evrópu og þá sé kannski aðeins verið að ýja að því eða láta að því liggja að sömu vextir, í umhverfinu sem er hér, myndu allt í einu poppa upp hér? Er verið að ýja að því? Nú, setjið þið það þá í þingsályktunartillöguna. Eða er þetta kannski ekki í þingsályktunartillögunni út af því að það er kannski ekki alveg hægt að segja þetta svona? Eða eigum við kannski að ræða um matarverð, innkaupakörfuna? Við höfum öll ferðast til Evrópusambandsríkja. Við vitum að matarkarfan er ódýrari. En fylgir með af hverju? Fylgir með hver eru lágmarkslaun í því ríki eða í því landi? Nei. Staðan er miklu flóknari en þetta og einhverra hluta vegna er þetta ekki sett í orð. Og það sem er enn alvarlegra er að samningsmarkmiðin eru ekki sett í orð. Það er ekki sett í orð hverju við viljum ná fram. Þjóðinni er ekki sýnd sú virðing að í spurningunni felist: Viljið þið gefa okkur, ríkisstjórninni, umboð til þess að setjast við samningaborð í Brussel fyrir hönd Íslands? Og þá myndi þjóðin kannski spyrja: Já, hverju ætlið þið að ná fram? Hvar liggja ykkar meginlínur? Hvar eru ykkar skurðpunktar í samningaviðræðunum? Hvar eru rauðu línurnar? Hvað verður algjör skóggangssök? Ja, það ætlum við ekki að ræða um fyrr en svarið við þessari spurningu liggur fyrir. Hvernig má það vera að hæstv. ríkisstjórn leyfi sér þetta — og ég tala nú ekki um að ríkisstjórnin er ekki einu sinni sammála um þessa vegferð. Á sama tíma er hún að krefjast þess af þjóðinni að hún svari því hvort hún fái umboð til þess að setjast við samningaborð en ætlar í engu, ekki í einu orði, að segja okkur hvað hún ætlar að segja við það samningaborð. Hvernig má það vera?
Ég veit ekki alveg, frú forseti, hvaða orð ég á að nota um þessa framkomu við þjóðina, að leyfa sér að spyrja hana þessarar spurningar án þess að nokkuð af þessum upplýsingum liggi fyrir. Einhvers konar tilætlunarsemi, hortugheit jafnvel. En lýðræðislegt er það ekki. Heiðarlegt er það ekki. Og í þessari þingsályktunartillögu er ekki heldur eitt aukatekið orð um kostnað. Við vitum að þetta er að lágmarki milljarður eða tveir. Hér er ríkisstjórnin að tala um hallalaus fjárlög. Hvað á að skera niður í staðinn? Fær íslensk þjóð að vita það? Fær hún að vega og meta hvort henni finnist þetta kostnaðarins virði? Fáum við að vita og vega og meta að hverju ríkisstjórnin ætlar ekki að einbeita sér á meðan? Við vitum að auðvitað mun kröftum og athygli drepið á dreif núna þegar síst skyldi, þegar við verðum öll að fara á sama dekk og ná niður verðbólgu og vöxtum; það er hagsmunamál fyrir hvert einasta heimili á Íslandi. Fær íslensk þjóð að vega þetta og meta? Nei, frú forseti. Þjóðin fær nefnilega ekki að vega þetta og meta. Ég gef lítið fyrir það í fullri einlægni að hér sé um virðingu við þjóðina að ræða, að hér sé verið að treysta þjóðinni. Að mínu viti, miðað við að engar upplýsingar liggja fyrir um af hverju ríkisstjórnin vill fara í þessa vegferð fyrir hönd Íslands, af hverju skiptir þetta máli, og ekkert um hvað Ísland telur sig geta mögulega náð fram eða alla vega myndi vilja ná fram þó að það væri ekki nema tilraunarinnar virði — ekkert af þessu er sett í orð. Kostnaðurinn liggur ekki fyrir. Þjóðinni er ekki sýnd sú kurteisi að þessar upplýsingar liggi fyrir í þessu máli. Þetta heitir ekki að treysta þjóðinni, þetta heitir þvert á móti að vantreysta þjóðinni.