157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:13]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir andsvarið. Ég held að það skipti mestu máli að það komi fram í þingsályktunartillögunni, og fari þá vonandi í gegnum vinnu nefndarinnar — og svo það sé nefnt þá er það með ólíkindum að í svona stóru máli sem er í stjórnarsáttmála sé farið á svig við reglur ríkisstjórnarinnar um að setja mál í samráð. Það er einhvern veginn alltaf verið að stikla yfir strik, eins og verið sé að forðast umræðuna sem ég botna ekkert í í þessu stóra máli. En við skulum vona að nefndarvinnan geti að einhverju leyti bætt þar úr. Auðvitað myndi maður vilja hafa þarna skýra sýn ríkisstjórnarinnar á það hvernig hún myndi vilja sjá hagsmunum Íslands borgið við þetta samningaborð. En að lágmarki, ef ég yrði pínd til að forgangsraða, myndi ég vilja spyrja: Hvar liggja hinar rauðu línur Íslands í þessum samtölum? Hvar liggur skurðpunkturinn þar sem við segjum: Nei, hér er lína sem við munum ekki stíga yfir? Þetta var ágætt samtal. Takk fyrir þetta kaffi latte, þetta hefur verið huggulegt en nú erum við farin. Sem dæmi sem skiptir máli — því að hér er nefnilega, ótrúlegt en satt, hæstv. utanríkisráðherra að segja: Auðvitað mun ég aldrei gefa frá okkur yfirráð yfir auðlindum Íslands, auðvitað ekki. Frábært, setjum það þá í þingsályktunartillöguna. Þá er ekki vafi á því. Og hvað eru t.d. yfirráð eða full yfirráð? Og hvað þýðir yfirráð? Þetta þarf allt að vera á hreinu. Hér má ekki vera um neinn orðhengilshátt að ræða. Og í lokin minni ég á að þingflokksformaður Samfylkingarinnar kom reyndar hér upp og sagði: Ja, hlutfall af uppsjávarfiski hlýtur að vera samningsatriði. (Forseti hringir.) Tveir stærstu flokkarnir í ríkisstjórninni eru ekki einu sinni sammála um hvað sé frágangssök í þessu máli. Þetta verður að vera á hreinu.