157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hitt atriðið sem mig langaði að spyrja um hér snýr að því sem þingmaðurinn kom réttilega inn á og varðar skort á samningsmarkmiðum, að það sé svona komið inn á það með hvaða hætti ríkisstjórnin sér fyrir sér að rauðu línurnar, ef svo má segja, liggi, hvar frágangspunkturinn sé í hverju máli fyrir sig. En þá er það auðvitað þetta atriði sem hv. þingmaður gerði stóran fyrirvara við, þ.e. að nota orðið áfram eftir þrettán ár í tengslum við þessar umræður. Á meðan samningsmarkmið eru ekki leidd út er hægt að draga nokkra aðra ályktun en þá að samningsmarkmið Jóhönnu og Steingríms séu samningsmarkmiðin? Það er þá bara ágætt fyrir almenning, er það ekki, að geta glöggvað sig á þeim og hvernig tókst til, en er nokkrum öðrum til að dreifa, miðað við það hvernig málið er lagt fram? Það sem hefur komið fram hingað til hjá hæstv. utanríkisráðherra bendir ekki til þess að til neins annars verði að grípa (Forseti hringir.) fyrr en að aflokinni kosningunni í lok ágúst. Eru það ekki bara samningsmarkmið (Forseti hringir.) og nálgun Jóhönnu og Steingríms sem kosið verður um í lok ágúst?