157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:26]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil fá að þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir hennar góðu ræðu hér áðan sem var afskaplega vel innrömmuð og tók á mjög mikilvægu efnisatriði er varðar þessa þingsályktunartillögu. Hv. þingmaður vék að efnisatriðum þingsályktunartillögunnar eða kannski öllu frekar öllum þeim efnisatriðum sem vantar inn í þessa þingsályktunartillögu. Hún vék að því hér áðan að það vanti t.d. þær mikilvægu upplýsingar af hverju ríkisstjórnin vilji fara í þessa vegferð. Ég tel reyndar að ástæðan fyrir því sé fyrst og síðast sú að það er engin samstaða meðal ríkisstjórnarinnar um vegferðina. Það er heldur ekki þingmeirihluti fyrir þessu máli, þ.e. að sækja um aðild að Evrópusambandinu, og þess vegna er þessi þjóðaratkvæðagreiðsla á borðum. Í ljósi þess að þessi vegferð er í raun tvöföld vegferð og í ljósi þess að við vitum svo vel — bara vegna þess að það eru svo mörg aðildarríki sem hafa farið þarna inn síðustu ár og við vitum mjög vel hvernig ferli þessa máls verður þegar við erum komin í samband við Evrópusambandið. Og af því að hún er tvöföld, af því að við vitum flest svörin við því hvernig Evrópusambandið mun nálgast þetta verkefni, er það ekki einmitt þess vegna sem þarf að vera: Allar upplýsingar upp á borð núna. Er það ekki hluti af virðingu við lýðræðið að hér fái kjósendur í landinu allar helstu upplýsingar til að taka upplýsta ákvörðun um þá kosti sem hér eru til staðar? Vegna þess að við vitum það mætavel að þegar þessari atkvæðagreiðslu lýkur þá fer málið bara í annan fasa.