þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Ég þakka hv. þm. Eiríki S. Svavarssyni kærlega fyrir að ég fæ aðeins að æfa lögfræðivöðvana hér í svari við þessari mjög svo áhugaverðu spurningu um lögskýringargögn. Ef ég rifja upp gömul fræði þá myndi ég segja: Já, svona yfirlýsing myndi auðvitað hafa lögskýringarlegt gildi en hún yrði mjög neðarlega á þeim lista, ég tala nú ekki um ef þau orð stangast á við annað í hinu lögformlega ferli, eins og nefndarálit eða annað sem væri á skjön við það. Þannig að þess þá heldur — ekki það að orð hæstv. utanríkisráðherra hafa auðvitað mikið vægi í þessu, en þegar þingflokksformaður Samfylkingarinnar, stærsta flokksins, flokks hæstv. forsætisráðherra, kemur og segir: Ja, það er samningsatriði hversu hátt hlutfall af uppsjávarfiski við munum gefa frá okkur, það hlýtur að vera samningsatriði, þá var það strax, hvort það var innan við klukkustund, komið á skjön við það hvernig ríkisstjórnin lítur á þessi samningsatriði. Fyrir utan það viljum við líka vita í svona (Forseti hringir.) lögformlegum texta: Hvað þýða yfirráð? Við þurfum að hafa það á hreinu. Hvað þýða full yfirráð? Forræði? Hér má ekki vera með orðhengilshátt. Þetta bara verður að vera á hreinu. Það er allt of mikið í húfi.