157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:46]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka spurninguna. Ég ætla að leggja mig fram um að reyna að skilja nákvæmlega hvað verið var að spyrja út í. Þegar ég nefndi í ræðu minni að um nokkurs konar viðhorfsspurningu væri að ræða, þá var meiningin á bak við það sú að það hefur svo lítið verið gert úr því hér í umræðunni, af mörgum úr stjórnarmeirihlutanum, að verið sé að fara í þessa atkvæðagreiðslu; að það sé nú bara allt í lagi að fá fram álit þjóðarinnar á því hvort við ættum að halda samtali við ESB áfram eða ekki. Það hefur kannski ekki komist nógu vel til skila en það býr að baki spurningunni að mjög lítið hefur verið gert úr því að verði þetta samþykkt — þ.e. ef meiri hluti segir já og samþykkir að halda samtalinu áfram — þá erum við að stíga mjög stórt skref inn í Evrópusambandið. Við erum í raun að hefja aðlögunarferil inn í Evrópusambandið, en reynt hefur verið að láta að því liggja að það sé saklaust að spyrja þjóðina. Þeir sem hafa aðrar skoðanir á því og finnst spurningin of opin, þar sem engin skilyrði liggi þar að baki — að þetta sé mjög opin spurning og sé í raun svolítil blekking. Með því að segja já ertu að stíga mjög stórt skref og ert að byrja aðlögunarferil inn í Evrópusambandið. Það er það sem ég var að reyna að útskýra. Það vantar samningsmarkmiðin. Það vantar skilyrðin. Það þarf kannski að útskýra það betur fyrir fólki að með því að samþykkja þetta sé aðlögunarferillinn hafinn. Það var það sem ég var að reyna að koma á framfæri, kæri þingmaður.