157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:54]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í áramótaávarpinu sem nefnt er hér segir hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:

„Leyfum engum að kljúfa okkur. Höfnum svartagallsrausi um að íslenska leiðin sé ekki lengur fær og hér þurfi að kúvenda högum okkar og háttum. Ekkert er fjær sanni.“

Svo líða, eins og hér er lýst, nokkrir dagar. Það þyrftu nú kannski einhverjir aðrir að svara því, eins og t.d. viðkomandi ráðherra, hvað gerist þarna á þessu tímabili. En eins og ég kom að í máli mínu hér áðan þá lítur dálítið út fyrir að þetta séu einhver svona skipti innan ríkisstjórnarinnar því það eru augljóslega skiptar skoðanir þar og ólíkar áherslur. Eitthvað hefur gerst þarna. Við sjáum hvernig mál hafa náð fram að ganga; skattahækkanir sem flokkur forsætisráðherra vill kalla skattaleiðréttingar og að fylla í glufur og hvað þetta heitir allt saman — alls kyns svoleiðis hlutir hafa riðið yfir okkur. Mál sem Flokkur fólksins hefur sett á oddinn hafa náðst í gegn. Það lítur dálítið út fyrir að nú hafi bara verið komið að Viðreisn og það ekki í neinu smámáli. Ég ætla svo sem ekki að svara fyrir það enda er ég ekki þarna innan dyra. Þetta lítur einhvern veginn þannig út að þetta séu einhver svona skipti. Maður spyr sig þegar svona er komið, þegar það er ekki þingmeirihluti fyrir máli eins og þessu og þegar skoðanir eru svona skiptar innan ríkisstjórnarflokkanna: Hefði kannski verið hreinlegra að boða til þingkosninga þar sem þetta mál væri eitt af málunum sem þjóðin fengi upplýsingar um og fengi að tjá sig um? (Forseti hringir.) Það hefði kannski verið langhreinlegast af öllu, (Forseti hringir.) fyrst þetta er svona rosalegt hagsmunamál núna sem á að drífa í gegn.