þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Auðvitað væri það kannski eðlilegra, ég segi það ekki, að sjá hvað kemur út úr þessu. En maður spyr sig samt, af því að þjóðaratkvæðagreiðslur hafa ekki verið mikið notaðar í okkar samfélagi: Ættum við að bæta bókun 35 við og fá viðhorf fólks til hennar ef það kæmi ólík niðurstaða út úr þessari viðhorfsspurningu, eins og ég vil kalla það, sem að öllu óbreyttu á að leggja fyrir nú í ágúst? Mætti setja einhver fleiri mál þarna undir? Eða, eins og ég er að varpa fram núna, hefði verið hreinlegast — vegna þeirra sérstöku aðstæðna að ekki er þingmeirihluti fyrir þessu máli. Það er fordæmalaust hjá þjóðum sem hafa farið í umsóknarferli — (Forseti hringir.) við búum við fulltrúaræði en ég er ekki að segja að ég (Forseti hringir.) sé á móti þjóðaratkvæðagreiðslum — og við ættum kannski að taka málið á þennan stað og ræða það.