þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka annað andsvar. Jú, ég treysti fyrrverandi forseta Alþingis og reyndum þingmanni til margra ára í þeim efnum og maður treystir því. Maður finnur að eftir því sem umræðunni vindur fram þá fjölgar bara spurningunum um hvert menn séu eiginlega að fara. Maður væntir þess að það verði gerðar einhverjar breytingar á tillögunni sjálfri eða í greinargerð kannski settar einhverjar útskýringar á því hvaða skilmálar eða samningsmarkmið eða skilyrði verði sett fyrir því að taka þetta alla leið. Þessi asi sem svífur hér yfir vötnum, þetta er allt í einu — við vissum að það stóð til að þetta mál kæmi á þessu kjörtímabili en það gerist bara í rauninni með nokkurra daga fyrirvara að þessu er skellt á núna rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þessi asi er í rauninni mjög grunsamlegur og þarfnast frekari skýringa. Hverjum á að treysta? (Forseti hringir.) Það er verið að spyrja hvort við eigum ekki að treysta þjóðinni, en treystum við ríkisstjórninni og ráðherrum til að breyta þannig að við vitum hvað við erum að fara að spyrja um og fólk viti hverju það er að fara að svara?